Opið hús verður hjá öllum Háskólum Íslands á Háskóladegi sem haldinn verður 1. mars. Háskóladagurinn er liður í opinni kynningarstarfsemi háskólanna á Íslandi og á honum verður fjölbreytt dagskrá þar sem í boði verða viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi.

VB sjónvarp talaði við Kristínu Ásu Einarsdóttur hjá markaðssviði HÍ og Elías Marel Þorsteinsson, meistaranema hjá HR.