Laun og aðrar greiðslu til stjórnar og stjórnenda 365 miðla námu 172 milljónum króna í fyrra. Þrír sátu í stjórn fyrirtækisins og voru stjórnendurnir sem þetta heyrði undir sjö talsins, samkvæmt nýbirtum ársreikningi 365.

Miðað við það voru meðallaunin þessarar tíu einstaklinga 1,4 miljónir króna. Heildargreiðslurnar námu 162 milljónum króna árið 2010 og nemur hækkunin því tæpum 6,2% á milli ára.

Hvorki er tekið fram í ársreikningnum hver laun Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, hafi verið í fyrra, né hvað stjórnarmenn fengu greitt fyrir störf sín.