Borgarráð fjallaði í morgun um skýrslu starfshóps um Nýju Reykjavíkurhúsin sem ætlunin er að rísi meðal annars í Vesturbugt og á Kirkjusandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Gert er ráð fyrir margbreytileika og hagstæðri félagslegri blöndun á báðum þessum byggingarreitum," segir í tilkynningunni. „Reykjavíkurborg stefnir að því að hluti húsnæðisins sem rís á reitunum verði félagslegt en að minnsta kosti 80 íbúðir munu verða í Vesturbugt undir merkjum Reykjavíkurhúsa."

Fyrir borgarráð voru lagðar tillögur um hvernig staðið verði að úthlutuninni. Gert er ráð fyrir samstarfi við einkaaðila við uppbygginguna, auk félaga sem reka leigu- og búseturéttarhúsnæði. Stefnt er að því að auglýsa sérstaklega eftir samstarfsaðilum í því skyni en borgarráð mun taka afstöðu til tillagnanna á næsta fundi sínum.

„Í Vesturbugt við gömlu höfnina er gert ráð fyrir að byggist upp 24 þúsund fermetrar af mannvirkjum á mjög eftirsóttum lóðum," segir í tilkynningu frá borgaryfirvöldum. „Samkvæmt nýjum drögum að deiliskipulagi fyrir reitinn verða byggðar 165 íbúðir á reitnum sem skiptast í útsýnisíbúðir, almennar íbúðir og raðhús auk leikskóla. Af þessum íbúðum að minnsta kosti 80 íbúðir á vegum Félagsbústaða og samstarfsaðila undir merkjum Reykjavíkurhúsa en meðalflatarmál íbúða í Vesturbugt með geymslu verður 78 fermetrar. Á Kirkjusandsreitnum er gert ráð fyrir um á annað hundrað íbúðum undir merkjum Reykjavíkurhúsa.

Starfshópurinn hefur skilað greinargóðri skýrslu um hvernig tryggja megi hagstæða félagslega blöndun á svæðinu en í henni segir að „hugmyndir um margbreytileika í íbúasamsetningum byggja á kenningum um félagsauð og gildi hans í samfélögum. Félagsauður er talinn hafa margs konar jákvæð áhrif bæði á líf einstaklinga og velferð samfélaga.

Um leið og útboðskilmálar hafa verið samþykktir verður auglýst eftir samstarfsaðilum en gera má ráð fyrir því um miðjan apríl."