Ný sýni úr hafsbotni á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu sem staðfestir að það sé virkt kolvetniskerfi á Drekasvæðinu.

Þetta kemur fram á vef Orkustofnunar. Þar segir að olíuleitarfélögin TGS og Volcanic Basin Petroleum Research (VBPR) hafi safnað sýnum úr 1000 metra háum hamri á hafsbotni á Drekasvæðinu í september sl. í samræmi við leitarleyfi sem Orkustofnun veitti TGS í sama mánuði. Meira en 200 kg af grjóti og seti náðust á tólf sýnatökustöðum.

Að sögn Orkustofnunar gefa nýju sýnin spennandi innsýn í olíujarðfræði Drekasvæðisins. Setbergi frá ýmsum tímum miðlífsaldar (fyrir 250 til 65 milljón árum síðan) var safnað. Engin sýni eldri en 50 milljón ára höfðu verið tekin á svæðinu með borun eða öðrum aðferðum fyrir síðasta sumar og koma til viðbótar við niðurstöður úr rannsókn norsku Olíustofnunarinnar en önnur jarðlög fundust í þessari rannsókn.

Sjá nánar á vef Orkustofnunar.