Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, og Jóannes Eidesgaard, fjármálaráðherra Færeyja, áttu í dag fund í Reykjavík þar sem rætt var um lán sem Færeyingar buðust nýlega til að veita íslenska ríkinu.

Í lok fundarins undirrituðu ráðherrarnir viljayfirlýsingu um lánið.

Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins.

Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að um verði að ræða lán að fjárhæð 300 milljónir danskra króna.

Lánið verður afborgunarlaust fyrstu 5 árin en að þeim tíma liðnum verður samið nánar um endurgreiðslutímann. Lánið mun bera sömu vexti og færeyska landstjórnin greiðir vegna sinna lántaka. Lánveitingin er háð samþykki færeyska lögþingsins.

„Við undirritun viljayfirlýsingarinnar bað fjármálaráðherra fyrir hlýjar kveðjur til Færeyinga fyrir þann vinarhug sem þeir sýna Íslendingum með lánveitingunni,“ segir á vef ráðuneytisins.