Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,80% á milli febrúar og mars og hefur nú hækkað um 6,8% á ársgrundvelli samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Verðbólgan jókst um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 6,6%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,48% milli mánaða og mældist 4,7%. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis mældist einnig 4,7% í febrúar.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hafi hækkað um 2,1% milli mánaða. Þá hækkuðu flugfargjöld til útlanda um 9,9% milli mánaða.

Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitala neysluverð myndi hækka um 0,5% milli mánaða sem hefði samsvarað því að verðbólgan hefði hjaðnað úr 6,6% í 6,5%. Hagfræðideild Landbankans spáði 0,57% hækkun vísitölunnar og þar með að verðbólga yrði óbreytt í 6,6%‏.

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í síðustu viku að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er þann 8. maí næstkomandi.