Vextir óverðtryggðra lána eru fastir til þriggja ára í senn. Þessir vextir lækka úr 4,95% í 4,57%. Frá þessu er greint á vef Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Vaxtalækkunin tekur gildi við endurskoðun vaxta samkvæmt ákvæðum skuldabréfs.

Vextir verðtryggðra lána, ákvarðaðir til fimm ára í senn, lækka úr 2,70% og verða 2,31%. %. Vaxtalækkunin tekur gildi við endurskoðun vaxta samkvæmt ákvæðum skuldabréfs.

Breytilegir vextir eldri verðtryggðra lána lækka úr 1,95% og verða 1,68%. Breytingin gengur í gildi þann 1. ágúst 2020.