Á fundi Samtaka stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði (SSB) í gær tók ný stjórn við taumunum. Hana skipa þau Guðjón Jónsson, Halldór Jónsson, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Sveinn Margeirsson, Vilhjálmur Bjarnason og Þórður Magnússon.

Fundargestum varð tíðrætt um stöðu stofnfjárlána sem veitt voru vegna stofnfjáraukningar í Byr árið 2007 og gerði Hróbjartur Jónatansson hrl. grein fyrir væntanlegum málaferlum nokkurra stofnfjáreigenda gagnvart Íslandsbanka.