Viðskiptaráð Íslands segir Beinu brautina um skuldaúrlausn fyrirtækja hafa reynst mörgum vel. Viðskiptaráð segir hins vegar að óvissa um meðferð gengisbundinna lána fyrirtækja hafi tafið fyrir úrlausnarferlinu og hvetur til að sambærilegt samstarf og Beina brautin verði tekið upp í samræmi við dóma Hæstaréttar.

Á vefsíðu Viðskiptaráðs í dag kemur fram að Samtök atvinnulífsins hafi ályktað í síðustu viku í þá veru að brýn nauðsyn væri til að leysa úr þeim vanda sem gengisbundin lán fyrirtækja hafi valdið. Undir það taki Viðskiptaráð, sem bætir við að skuldaúrlausn fyrirtækja hafi ekki gengið nægilega hratt fyrir sig.

„Það samstarf sem náðist um Beinu brautina hefur reynst mörgum fyrirtækjum vel og átt sinn þátt í að hraða endurskipulagningaferlinu í heild. En betur má ef duga skal og engin ástæða er til að ætla annað en að sambærilegt samstarf geti orðið um úrvinnslu gengisbundinna lána fyrirtækja, í samræmi við dóma Hæstaréttar. Viðskiptaráð mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum og hvetur til þess að slíku samstarfi verði komið á sem allra fyrst,“ segir Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs á vefsíður ráðsins .