Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 352,7 stig í mars og lækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 1,5% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 9,6% samkvæmt tölum frá Fasteignamati Ríkisins.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun á vísitölu íbúðarverðs frá því í janúar 2005.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.