Vordís Eiríksdóttir, forstöðumaður hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Guðjón H. Eggertsson, deildarstjóri hjá HS Orku, og Maryam Khodayar, ráðgjafi, voru einnig kjörin í stjórn félagsins.

Fjölnýting jarðvarmans í aðalhlutverki

Vordís er jarðeðlisfræðingur og starfar sem forstöðumaður jarðvarmareksturs hjá Landsvirkjun sem rekur þrjár gufuvirkjanir; Kröflu, Þeistareyki og gufustöðina í Bjarnarflagi. Hún tekur við formennsku af Sigurði H. Markússyni, viðskiptaþróunarstjóra hjá Landsvirkjun, sem gegnt hefur formennsku í tvö ár.

„Lífsgæðin sem nýting jarðvarmans hefur fært þjóðinni er óumdeild en ég held við séum hvergi nærri hætt, möguleikar í fjölnýtingu og nýsköpun tengdri jarðhita eru miklir og á tímum sem þessum er mikilvægt sem aldrei fyrr að styðja við áframhaldandi uppbyggingu nýsköpunarfyrirtækja í geiranum“, sagði Vordís í ávarpi til fundargesta í gær.

„Á síðustu öld var unnið gríðarmikið starf við hagnýtingu jarðvarmans og stóð þar uppúr uppbygging hitaveitu og rafmagnsframleiðslu. Ég vona, og okkur sýnist allt stefna í að á þessari öld verður fjölnýting jarðvarmans í aðalhlutverki.“

Guðjón H. Eggertsson starfar sem deildarstjóri auðlindastýringar hjá HS Orku. Maryam Khodayar starfar sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stundar jarðvísindarannsóknir í orkugeiranum. Þau taka við stjórnarsetu af Kristínu Völu Matthíasdóttur, HS Orku, sem setið hefur í stjórn frá árinu 2012 og Lovísu Árnadóttur, Samorku.

Stjórn JHFÍ skipa að loknum aðalfundi 2020:

  • Vordís Eiríksdóttir, formaður, Landsvirkjun
  • Daði Þorbjörnsson, ÍSOR
  • Guðjón H. Eggertsson, HS Orka
  • Gunnar Gunnarsson, Orkuveita Reykjavíkur
  • Lilja Tryggvadóttir, Mannvit
  • Maryam Khodayar, ráðgjafi
  • Sigrún Nanna Karlsdóttir, Gerosion