Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 5%-7% í flestum matvöruverslunum frá því um miðjan júní.

Minnst er hækkunin á verði körfunnar tæp 1% í Krónunni og tæp 2% í Hagkaupum á tímabilinu.

Frá því verðlagseftirlit ASÍ birti síðast verð á vörukörfu sinni um miðjan júní (vika 25) og þar til í liðinni viku (vika 37) hefur verð körfunnar hækkað mest í Kaskó um 7,3% og í Samkaupum-Úrval um 6,9%.

Þetta kemur fram á vef ASÍ í dag.

Þar segir að frá því um miðjan apríl (vika 15), þegar verð körfunnar var fyrst mælt, hefur vörukarfa ASÍ hækkað um 7%-16% í flestum matvöruverslunarkeðjum. Mest er hækkunin tæp 17% í Kaskó og rúm 13% í Bónus en minnst hefur verð körfunnar hækkað í Hagkaupum um ríflega 5% frá því í apríl.

Jafnframt kemur fram að verð vörukörfunnar hækkaði um eða yfir 5% í öllum lágvöruverðsverslunum að Krónunni undanskilinni þar sem hækkunin nam 0,7% á milli mæling.

Kaskó hækkar mest

7,3% verðhækkun á körfunni í Kaskó er að mestu tilkomin vegna mikilla hækkana á brauði og kornvörum (15,5%), sykri og sætindum (17%), drykkjarvörum (11%) og hreinlætisvörum (25%) í vörukörfunni.

Í Bónus nam hækkun vörukörfunnar í heild sinni 5,2% og má rekja þá hækkun að stærstum hluta til mikilla hækkana á brauði og kornvörum (13%) í vörukörfunni, auk grænmetis og ávaxta (11%) og hreinlætisvara (13,6%).

Í Nettó hækkaði verð vörukörfunnar um 5% sem skýrist að mestu af mikilli hækkun á brauði og kornvörum (15,6%), sykri og sætindum (16,6%) og hreinlætisvörum (22,8%) í innkaupakörfunni. Á móti þessum hækkunum vegur að kjötvörur í körfunni hjá Nettó lækka um tæp 6%.

ASÍ segir að þrátt fyrir að heildarverð vörukörfunnar í Krónunni hækki lítið þá hafa vöruflokkar eins og brauð og kornvörur, grænmeti og ávextir og hreinlætisvörur hækkað mikið frá því í júní.

Á móti vegur að kjötvörur, drykkjarvörur og flokkurinn ýmsar matvörur í vörukörfunni hjá Krónunni hafa lækkað á milli mælinga.

Samkaup Úrval hækkar mest af stórmörkuðunum

Í skýrslu ASÍ hækkaði vörukarfan mest í Samkaupum-Úrval um 6,9% frá því um miðjan júní í stórmörkuðum.

Að sögn ASÍ má að mestu rekja hækkunina til mikilla hækkana á kjötvörum (12%), brauði og kornvörum (9%), sykri og sætindum (12%) og hreinlætisvörum (12,5%) í innkaupakörfunni.

Í Nóatúni hækkaði verð körfunnar um 2,7% sem skýrist að mestu af hækkunum á brauði og kornvörum (5,5%) og hreinlætisvörum (21%).

Í Hagkaupum hækkaði verð heildakörfunnar um 1,7% á milli verðmælinga en þar hækkuðu grænmeti og ávextir (7,4%), sykur og sætindi (6,3%) og drykkjarvörur (8%) mest en á móti þeirri hækkun vegur lækkun um 5% á kjötvörum í körfunni.

11-11 hækkar mest af klukkubúðunum

Af klukkubúðarkeðjunum þremur, 10-11, 11-11 og Samkaup-Starx hækkaði verð á vörukörfu ASÍ mest í 11-11 um 6,1% á milli mælinga um miðjan júní (vika 25) og í liðinni viku (vika 37). Mest hækkuðu vöruflokkarnir hreinlætisvörur (14,9%), ýmsar matvörur (14,5%) og drykkjarvörur (11,8%) í vörukörfunni hjá 11-11. Verð heildarkörfunnar hækkaði um 5,4%

í Samkaupum-Strax sem skýrist að mestu af hækkun á brauði og kornvörum (11%), ýmsum matvörum(10,3%), sykri og sætindum (8,9%) og drykkjarvörum (7%).

Í 10-11 hækkaði verð körfunnar um 4,4% á milli mælinga og má rekja þá hækkun að stærstum hluta til hækkana á grænmeti og ávöxtum (10%), drykkjarvörum (7%) og ýmsum matvörum (6,7%) í körfunni.