Áhyggjur á Wall Street af hækkun skuldaþaks alríkissjóðsins hefur valdið lækkunum á helstu visitölum þriðja daginn í röð.

Hvorki virðist ganga né reka í tilraunum fulltrúa demókrata og repúblíkana til að finna lausn á málinu.  Barack Obama hvatti þingmenn að komast að málamiðlun í ávarpi sínu aðfaranótt þriðjudags.

Dow Jones hefur lækkað um 0,89% það sem af er degi, Nasdaq um 1,74% og S&P um 1,24%.