Bíla­sala Suður­lands var tekju­hæsta bíla­salan með 1,9 milljarða í tekjur í fyrra saman­borið við 1,7 milljarða árið 2021 sam­kvæmt 500 stærstu tölu­blaði Frjálsrar verslunar. Ecobílar var með næst­mestu tekjurnar eða sam­tals 1,3 milljarða. Átta af níu bíla­sölum á listanum voru reknar með hagnaði í fyrra en árið 2021 skiluðu allar níu hagnaði.

Vöxtur í tekjum hjá bíla­sölum hefur verið mjög mikill á síðustu árum en en frá árinu 2019 hefur veltan svo gott sem tvö­faldast. Það eru fáir geirar at­vinnu­lífsins sem hafa vaxið svo mikið á þessum tíma­bili.

Sé litið til þeirra geira sem fjallað er sér­stak­lega um í 500 stærstu þá voru það einungis tveir geirar af 30 sem juku tekjur sínar meira en bíla­sölur en það voru aug­lýsinga­stofur og kvik­mynda­gerð.

Nánar er fjallað um bílasölur í bókinni 500 stærstu sem kom út mið­viku­daginn 6. desember. Hægt er að kaupa bókina hér.