Dagana 1.– 3. janúar verður auglýsingahlé á yfir 500 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmanninn Harald Jónsson sem valinn var úr hópi um 40 umsækjenda.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Billboard rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og víða á höfuðborgarsvæðinu og efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Haraldar dag hvern en verkið verður sýnt á yfir 500 skjáum um alla borgina, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum.

Að sýningartíma loknum er verkið gefið út í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu auglýsingahléi Billboard.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Verkið hverfist um ummyndanir kunnuglegra fyrirbæra úr tíðarandanum sem líða síkvikar um loftið þegar heimurinn er tímabundið opinn í báða enda um áramót. Það er skuggsjá sem ofin er úr brotakenndum skilaboðum, hnitum, hugljómunum og óvæntum tilboðum úr undirvitundinni,“ segir Haraldur um verkið.