Authentic Brands Group, eigandi vörumerkisins Sports Illustrated, hefur fundið nýjan útgefanda fyrir mánaðarlegt tímarit Sports Illustrated. Félagið sagði skilið við fyrri útgefanda, Arena Group, vegna vanskila fyrr á árinu.

Tilkynnt var á mánudag um að félagið hafi efnt til langtíma samstarfs við Minute Media en samningurinn nær til tíu ára, með möguleika á framlengingu um allt að 20 ár í tíu ár í senn.

Fjölmiðlafyrirtækið gæti því séð um að gefa út blaðið allt fram að 100 ára afmælinu en Sports Illustrated tímaritið kom fyrst út fyrir 70 árum.

Með nýja samningnum verður einnig hægt að endurráða hluta starfsmannanna sem var sagt upp þegar samstarfinu við Arena lauk.

Wall Street Journal greinir frá þessu en segir að fyrirtækin hafi ekki greint frá skilmálum samningsins. Samhliða samningnum mun Authentic Brands Group eignast hlut í Minute Media.