Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss. Hann var hótelstjóri Hótel Kötlu-Höfðabrekku á árunum 2004-2018, fjármálastjóri Estadal 2 frá 2018-2022 og nú síðast var hann framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss.

Björgvin er með B.Sc. gráðu í Viðskiptafræði með áherslu á ferðamálafræði frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

„Ég er mjög spenntur að taka að mér að stýra þessu glæsilega hóteli. Hér er flottur hópur starfsfólks sem ég hlakka til að vinna með. Selfoss er stöðugt að verða meira aðdráttarafl ferðamanna, bæði innlendra og erlendra, sérstaklega með tilkomu miðbæjarins glæsilega. Hótelið er á besta stað í bænum til að taka á móti þessum ferðamönnum og það er tilhlökkun að sjá til þess að allir njóti dvalarinnar hjá okkur,“ segir Björgvin í tilkynningu.

Eignarhaldsfélagið JAE, í eigu 365 og Hólmi, festu nýlega kaup á Hótel Selfoss, fyrir 2,7 milljarða króna.