Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn. Hann tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum. Greint er frá ráðningu hans í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eðvald kemur til Sýnar frá Kviku þar sem hann kom á fót og veitti hagdeild forstöðu sem er sögð hafa verið í lykilhlutverki í stafrænni framþróun fjármálasviðs Kviku.

Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Greiðslumiðlun Íslands og við greiningar hjá NextCODE, CCP og Nykredit banka í Danmörku.

Eðvald útskrifaðist með meistaragráðu í verkfræði með áherslu á hagnýta stærðfræði frá DTU í Danmörku árið 2010 en lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

„Ég er fullur tilhlökkunar að hefja störf hjá Sýn og taka þátt í þeirri vegferð sem félagið er á. Sýn hefur gengið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum og framundan eru spennandi tímar á krefjandi markaði. Mikilvægt er að byggja upp öfluga innviði til að styðja við gagnadrifna ákvörðunartöku hjá félaginu. Fjármálasvið er þar í lykilhlutverki og er ég þakklátur fyrir að vera sýnt það traust að fá að leiða sviðið,“ segir Eðvald.

„Ég er sannfærð um að yfirgripsmikil reynsla og þekking Eðvalds muni reynast Sýn vel. Eðvald er með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum og hefur gegnt lykilhlutverki í stafrænni framþróun fjármálasviðs Kviku. Ég er virkilega spennt og hlakka til að fá hann til liðs við okkur hjá Sýn,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.