Hinrik Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Nóa Siríus. Um er að ræða nýtt svið sem sett hefur verið á fót og undir heyra sölustýring, viðskiptagreining og þjónusta við viðskiptavini. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu þar sem segir að þetta sé liður í endurskipulagningu á skipuriti fyrirtækisins sem miði að því að auka enn frekar samhæfingu milli sviða og skilvirkni í sölu og þjónustu.

Hinrik hefur gegnt starfi markaðsstjóra innfluttra vara Nóa Siríus frá 2022 en áður var hann vörumerkjastjóri hjá Nathan og Olsen, sölustjóri hjá Ion hótelum auk þess að hafa starfað hjá Vistor og Distica.

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar, segir þetta mikilvæga breytingu á þeirri vegferð að nýta þau tækifæri sem fram undan eru hjá fyrirtækinu. Reynsla Hinriks í stjórnun viðskiptasambanda muni efla sókn Nóa Síríusar og treysta enn betur samskipti og þjónustu við viðskiptavini.

„Ég hlakka til að taka við nýju hlutverki innan Nóa Síriusar. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur og skemmtilegur hópur fólks sem hefur mikinn metnað í að efla og styrkja viðskiptasambönd við okkar viðskiptavini og munum við halda áfram að veita þá úrvals þjónustu sem við erum þekkt fyrir á markaðnum,“ segir Hinrik Hinriksson.

Hinrik er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá háskólanum í Reykjavík og með BS gráðu í sálfræði frá sama skóla með markaðsfræði sem aðaláherslu. Unnusta Hinriks er Laufey Lilja Ágústsdóttir, bakhjarl í fjárfestingarverkefnum hjá Veitum, og eiga þau tvö börn.