Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) fjölgaði um rúm 15% í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 116 þúsund farþegum árið 2005 í rúmlega 133 þúsund farþega nú. Þetta kemur fram í frétt FLE.

Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 18 % milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæp 5%.