Í ritinu Utanríkisverslun með vörur 2007, sem Hagstofa Íslands hefur nú gefið út kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 305,1 milljarð króna en inn fyrir 395,2 milljarða króna á árinu 2007.

Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 90,1 milljarði króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Útflutningur jókst um 25,7% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs en innflutningur dróst saman um 1,1%.

Í útflutningi voru sjávarafurðir 41,8% alls útflutnings og iðnaðarvörur 38,9% en í innflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og flutningatæki.

Stærstu viðskiptalönd voru Holland í útflutningi og Bandaríkin í innflutningi og í frétt Hagstofu um útgáfuna segir að EES hafi verið þýðingamesta markaðssvæðið, jafnt í útflutningi sem í innflutningi.

Samhliða útgáfu heftisins eru birtar sundurliðaðar töflur eftir einstökum löndum og vöruflokkum árið 2007 á vef Hagstofunnar. Birting árlegra upplýsinga um utanríkisverslunina eftir tollskrárnúmerum og löndum, sem hafa fylgt þessari útgáfu, verða birtar 16. maí og verða þá gefnar út mánaðarlegar upplýsingar eftir tollskrárnúmerum og löndum fyrir árin 2006, 2007 og janúar-mars 2008.