Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:05 í 4.228 stigum.

Vísitalan hafði lækkað um 1% um tíma í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað í morgun. Athygli vekur að Atorka [ ATOR ] leiðir lækkanir dagsins en félagið birti hálfsársuppgjör í gærkvöldi. Heldur hefur þó dregið úr lækkuninni en félagið hafði lækkað um tæp 6% í morgun.

Velta með hlutabréf er um 1,1 milljarður. Þar af eru rúmar 400 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ],  tæpar 300 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 125 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur nú styrkst um 0,1% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,9 stig. Krónan hafði um tíma í morgun veikst um 0,2%.