Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,6% og er 5.514 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,4 milljörðum króna.

Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 3,3% en félagið birti uppgjör sitt eftir lokun markaðar í gær, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 2,5%, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað um 1,5% og Teymi [ TEYMI ] hefur hækkað um 1,2%.

Flaga Group [ FLAGA ] hefur lækkað um 0,8%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,5% og er 125,6 stig.