Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur nú lækkað um 0,2% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 11:55 í 4.273 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Atlantic Patroleum [ FO-ATLA ] og Föryoa banki [ FO-BANK ] hafa hækkað í morgun á meðan fjármálafyrirtæki leiða lækkun dagsins.

Eins og sést leiðir Exista lækkanir dagsins en á bakið lækkun Exista [ EXISTA ] eru þó aðeins viðskipti upp á tæpar 18 milljónir.

Velta með hlutabréf er enn lítil eða aðeins um 320 milljónir. Þar af er tæplega helmingur veltunnar með bréf í Kaupþing [ KAUP ] eða um 150 milljónir. Velta með bréf í Glitni [ GLB ] er tæplega 130 milljónir en talsvert minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,3% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 157 stig.