Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,19% og er 8.507 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,4 milljörðum króna.

Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,18% og Össur hefur hækkað um 0,46%.

FL Group hefur lækkað um 6,12%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 3,46%, Alfesca hefur lækkað um 2,69%, Bakkavör Group hefur lækkað um 2,65% og Exista hefur lækkað um 2,45%.

Gengiu krónu hefur veikst um 1,33% og er 114,9 stig.