Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 634 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% á föstudag og hélt áframað lækkað strax við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Century Aluminum hefur hækkað í dag.

Velta með hlutabréf er rétt rúmar 90 milljónir króna en þar af eru um 46,5 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir 35,5 milljónir króna með bréf í Össur.