Markaðurinn hækkar þriðja daginn í röð. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,71% og er 6.250,48 stig.

Flaga Group hækkar mest, eða um 3,88%, Mosaic Fashions hækkar um 3,47%, Alfesca hækkar um 2,80% og FL Group hækkar um 2,43%

Atlantic Petroleum er eina félagið sem lækkar. Lækkunin nemur um 1,21% í um einnar milljón króna viðskiptum.