Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 647 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæplega 68 milljónir krónur en þar af eru rúmar 60 milljónir með bréf í Marel.

Þá er velta fyrir rúmar 5,7 milljónir króna í Century Aluminum.