Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands varð 6,5 milljarða króna afgangur af vöruskiptum við útlönd í marsmánuði. Útflutningur nam 51,3 milljörðum og innflutningur 44,8 milljörðum. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Þar með er afgangur af vöruskiptum á fyrstu þremur mánuðum ársins tæpir 92 milljarðar króna.