Áætlaður rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var á bilinu 27-30 milljónir evra, eða um 3,8-4,2 milljarða króna, á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt stjórnendauppgjöri. Til samanburðar var 16,3 milljóna evra EBITDA hagnaður hjá flutningafyrirtækinu á fyrsta fjórðungi 2021.

„Fyrsti ársfjórðungur byrjaði vel, bæði í gámaflutningum og alþjóðlegri flutningsmiðlun, samanborið við síðastliðið ár,“ segir í tilkynningu sem Eimskip sendi frá sér eftir lokun markaða í dag.

Áætlaður hagnaður fyrir EBIT hagnaður Eimskips á fyrsta fjórðungi liggur á bilinu 11,7-14,7 milljónir evra samanborið við 4,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Félagið áréttar að uppgjörið fyrir marsmánuð og fyrsta ársfjórðung 2022 sé enn í vinnslu og því geti niðurstöður tekið breytingum í uppgjörsferlinu. Eimskip birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. maí næstkomandi.