Landsvirkjun og Laxey ehf. undirrituðu í dag samning um sölu og kaup á endurnýjanlegri raforku til uppbyggingar nýrrar landeldisstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Gert er ráð fyrir að aflþörfin verði um 22 MW þegar stöðin verður komin í fullan rekstur.

Að því er segir í tilkynningu um málið verður verkefnið byggt upp í áföngum á næstu árum og nær fullri stærð árið 2030. Samkvæmt samningnum hefst afhending raforku í apríl 2026.

Samhliða kaupir Laxey upprunaábyrgðir fyrir raforkunotkuninni en Viðskiptablaðið greindi frá því nýverið að gagnaverin hafi hingað til verið einu stórnotendurnir hér á landi sem kaupa slíkar ábyrgðir.

Forsenda þess að samningurinn nái fullri stærð er aukin orkuvinnsla Landsvirkjunar en gert er ráð fyrir að Búrfellslundur verði gangsettur síðla árs 2026 og Hvammsvirkjun tveimur árum síðar.

Gert er ráð fyrir að verkefnið skapi um eða yfir 100 störf en uppbygging er þegar hafin á stöðinni, sem verður með 32 þúsund tonna framleiðslugetu. Laxey lauk í september síðastliðnum hlutafjáraukningu að andvirði 6 milljarða króna til íslenskra fjárfesta.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir uppbygginguna spennandi verkefni sem muni auka verðmætasköpun og útflutning frá Vestmannaeyjum og Íslandi í heild.

„Ábyrgðarfull og sjálfbær nýting endurnýjanlegra vatns- og orkuauðlinda er í samræmi við forgangsröðun og stefnu Landsvirkjunar í raforkusölu. Það er sérstaklega ánægjulegt að Laxey verði fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum og muni þannig styðja við áætlanir um bætt raforkuöryggi þar.“

Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar, segir að þau séu ánægð með samninginn og spennt fyrir komandi samstarfi.

„Stefnan hjá Laxey er að áhrif fyrirtækisins á umhverfið verði í algjöru lágmarki og framleiðslan verði í samræmi við ströngustu staðla. Það er því mikilvægt fyrir okkur að nýta græna orkugjafa. Umskipti yfir í græna orku eru nauðsynleg fyrir laxeldisstöðvar á landi til að lágmarka umhverfisfótspor, draga úr kostnaði og viðhalda trausti neytenda á sjálfbærni starfseminnar.“