„Yfirvofandi verkföll flugumferðarstjóra er aðför að ferðaþjónustunni í landinu. Á undanförnum árum hefur fjöldi frumkvöðla byggt upp margvíslega ferðaþjónustu um land allt, gistiaðstöðu, veitingasölu og fjölbreytta afþreyingu með ærnum tilkostnaði og lánum. Þessi starfsemi er nú í uppnámi vegna verkfallsboðunar flugumferðarstjóra,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálasamtökum Íslands vegna fyrirhugaðs verkfalls flugumferðastjóra.

Í tilkynningunni segir jafnframt að starfsumhverfi ferðaþjónustunnar hér á landi er afskaplega erfitt um þessar mundir.

„Háir vextir og almenn kaupmáttarrýrnun hefur afar slæm áhrif á starfsemina. Hækkun matarverðs veldur veitingahúsunum erfiðleikum og ógnarhátt bensínsverð dregur úr ferðalögum innanlands. Helsta von ferðaþjónustunnar var því bundinn við ferðalög útlendinga til landsins sem nú er ógnað með verkfallsboðunum flugumferðarstjóra,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að fyrirhugaðar aðgerðir flugumferðastjóra séu alvarlegar fyrir ferðaþjónstuna.

„Það er sorglegt að flugumferðarstjórar, fámenn stétt hálaunafólks, skuli ógna rekstraraðilum á Íslandi á þennan hátt. Ef að aðgerðum flugumferðastjóra verður hefur það bein áhrif á afkomu um tíu þúsund manns sem starfa við ferðaþjónustu á Íslandi yfir sumarmánuðina," segir jafnframt en undir yfirlýsinguna skrifar Pétur Rafnsson, f.h. stjórnar Ferðamálasamtaka Íslands.