Ágúst Guðmundsson tekur við starfi forstjóra Bakkavarar frá og með 26. maí næstkomandi og Lýður Guðmundsson, núverandi forstjóri, verður stjórnarformaður, segir í tilkynningu frá félaginu.

Eins og fram hefur komið, verður Lýður starfandi stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Exista og mun því draga úr þátttöku í daglegum rekstri Bakkavarar en halda áfram að gegna lykilhlutverki í stefnumarkandi ákvörðunum félagsins.

Ágúst verður forstjóri Bakkavarar-samstæðunnar og þar með talið Geest en Gareth Voyle, forstjóri Geest, hefur ákveðið að láta af störfum.