Akta sjóðir hf. hófu nýverið starfsemi sína. Akta sjóðir er rekstrarfélag verðbréfasjóða sem rekið er í samstarfi við Kviku banka hf. Akta annast rekstur og stýringu verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða fyrir hönd viðskiptavina sinna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Félagið er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki og á rætur að rekja til ársins 2013 og byggir á grunni sjóðstýringar innan forvera Kviku.

„Akta rekur fjóra fagfjárfestasjóði og einn verðbréfasjóð. Akta leggur áherslu á virka sjóðastýringu þar sem sjóðstjórar eru meðfjárfestar í þeim sjóðum sem þeir stýra.

Örn Þorsteinsson er framkvæmdastjóri Akta, en hann hefur yfir 18 ára reynslu af eigin fjárfestingum. Stjórn Akta skipa Arna Grímsdóttir, Agla Elísabet Hendriksdóttir og Anna Rut Ágústsdóttir,“ segir einnig í tilkynningunni.