Netflix hefur landað frægasta pari Hollywood Brad Pitt og Angelinu Jolie Pitt. Jolie Pitt mun leikstýra og framleiða nýja kvikmynd fyrir framleiðslufyrirtækið sem verður byggð á æviminningum First They Killed My Father: A Daughter of Cambodia Remembers.

Bókin er eftir Loung Ung sem hefur barist fyrir mannréttindum og er um það að lifa af Khmer Rouge tímabilið þegar nærri tvær milljónir Kambódíumanna létust.

Í tilkynningu sagði Angelina Jolie að erfitt væri að horfa á svona kvikmyndir en mikilvægt væri að sjá þær. Hún sagði einnig að erfitt væri að fá að gera svona myndir og að Netflix sé að gera það mögulegt.

Myndin verður framleidd seinna á árinu og verður svo í boði fyrir 65 milljónir notenda Netflix. Enn hefur ekki verið birt hvað þau fengu fyrir samninginn við Netflix.