Baugur Group hefur ákveðið að selja hlut sinn í raftækjakeðjunni Merlin til Árdegis hf. sem fjárfestahópur, undir forystu Árdegis hf. keypti í september 2005. Hópurinn samanstóð af Árdegi, Fjárfestingafélaginu Milestone og Baugi Group. Eftir kaupin var farið af stað með aðgerðaráætlun til að snúa við rekstri Merlin sem hafði um nokkurra ára skeið skilað umtalsverðu tapi. Nú þegar tvö ár eru liðin af þeim tíma sem ætlaður var til viðsnúnings, hefur Árdegi hf. keypt hlut Baugs Group. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Sverrir Berg Steinarsson, eigandi Árdegis, sem að rekur verslanir BT á Íslandi og er í áþekkum rekstri og Merlin, telur að nú sé góður tími til að taka sterkari stöðu í Merlin og ná fram frekari samlegð milli fyrirtækjanna tveggja. ?Þetta hefur verið spennandi tímbil frá því við tókum yfir Merlin árið 2005. Við erum í aðalatriðum mjög sátt við árangurinn og horfum bjartsýn til framtíðar. Við sjáum mikla samlegðarmöguleika milli Merlin og reksturs okkar hér á Íslandi sem við munum nú kanna frekar.?

Gunnar S. Sigurðsson, forstjóri Baugs Group sagði að þeir hafi verið ánægðir með fjárfestinguna í Merlin og þróun fyrirtækisins á undanförnum tveimur árum. Árdegi hafi sýnt áhuga á að taka sterkari stöðu í fyrirtækinu og ná fram frekari samlegðaráhrifum með fyrirtækjum sínum á Íslandi og gerði þeim tilboð í þeirra hlut sem þeir voru ánægðir með og tóku.

Eftir söluna verður Merlin dótturfélag Árdegis sem mun eiga 65% af fyrirtækinu og Milestone mun eiga 35%. Það verða engar meiriháttar breytingar á núverandi þriggja ára viðsnúningsáætlun Merlin. ?Við byrjuðum með ítarlega þriggja ára áætlun til að snúa við rekstri fyrirtækisins. Við munum halda áfram samkvæmt áætlun og hlökkum til tímanna framundan,  hvernig er annað hægt þegar maður hefur svona frábæran hóp af starfsfólki sem að er ákveðið í að takast á við verkefnin framundan?, bætti Sverrir Berg Steinarsson eigandi Árdegis við.