Unnið er að þýðingu á ársreikningi Arion banka, að sögn Haralds Guðna Eiðssonar, upplýsingafulltrúa bankans. Hann er nú aðeins aðgengilegur á ensku en lögum samkvæmt ber fyrirtækjum að skila ársuppgjöri á íslensku.

Íslandsbanki og Landsbankinn birtu einnig sína reikninga aðeins á ensku, en þeir eru aðgengilegir á íslensku í ársskýrslum bankanna.

Viðskiptablaðið leitaði til bankanna þriggja og spurðist fyrir um hvort ársreikningar yrðu birtir á íslensku, þar sem þeir voru í fyrstu aðeins birtir á ensku.

Höskuldur Ólafsson, Arion
Höskuldur Ólafsson, Arion
© Axel Jón Fjeldsted (VB MYND/AXEL JÓN)
Höskuldur Ólafsson er bankastjóri Arion banka.