Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 0,9% og lauk í 17.209,92. Fjármálafyrirtæki hækkuðu sérstaklega í kauphöllinni í Tókíó, en talið er að Seðlabanki Japans muni hækka stýrivexti í vikunni, segir í frétt Dow Jones.

Bankinn Sumitomo Mitsui Financial hækkaði um 3,3%, en smærri lánastofnanir hækkuðu einnig talsvert, á borð við Towa Bank, sem hækkaði um 5,6%.

Japan Airlines hækkaði um 5,1% í kjölfar frétta um að flugfélagið hyggðist taka 60 milljarða jena lán fyrir lok fjárhagsárs fyrirtækisins.