Vínbúðin leitar nú að leiguhúsnæði í Garðabæ og stefnir að því að opna verslun þar á næsta ári. Engin vínbúð hefur verið í Garðabæ í 6 ár, eða frá áramótum 2010. Þetta kemur fram í útboðslýsingu á vef Ríkiskaupa.

Áður var ÁTVR með vínbúð á Garðatorgi í Garðabæ í tæpan áratug en lokaði eins og áður sagði árið 2010. Í útboðslýsingu Ríkiskaupa kemur fram að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir því að taka á leigu um 350-400 m2 húsnæði fyrir Vínbúð í Garðabæ.