Árleg aðventuhátíð Heklu var haldin síðastliðið fimmtudagskvöld. Margt var um manninn og mikil jólastemming ríkti í sýningarsölunum við Laugarveg. Boðið var upp á laufabrauð, hangilæri, jólaglögg og aðrar gómsætar veitingar. Knútur G. Hauksson forstjóri ávarpaði samkomuna og fagnaði jólasnjónum sem féll ljúflega. Bogomil Font og Kristjana Stefánsdóttir tóku nokkur jólalög ásamt hljómsveit.