Breska leiguflugfélagið Excel Airways, sem er í eigu Avion Group, hefur samþykkt að kaupa bresku ferðaskrifstofuna Kosmar Villa Holidays, segir í tilkynningu frá Avion Group. Kaupverðið var ekki gefið upp.

Stjórnendur Kosmar Villa Holidays munu starfa áfram hjá félaginu, segir í tilkynningunni, og munu kaupin styrkja leiguflugseiningu Avion Group.

Kosmar Villa Holidays sérhæfir sig í ferðum til Grikklands og mun á þessu ári einnig bjóða pakkaferðir til Tyrklands, segir í tilkynningunni.