Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan hækkaði um 1,24% í nótt og ASX í Ástralíu hækkaði enn meira eða um 2,03%, m.a. vegna frétta um heldur skárri horfur´og betri hagtölur frá bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Sjanghæ-vísitalan í Kína lækkaði engu að síður um 1,17% og þegar klukkutími lifði af viðskiptum í Hong Kong hafði Hang Seng lækkað um 0,64%.