Baugur og aðrir nýir eigendur bresku stórverslunarkeðjunnar House of Fraser hafa selt höfuðstöðvar fyrirtækisins í London, segir í frétt breska blaðsins The Herald. Söluverðið var ekki gefið upp.

Fasteignaþróunarfélagið Terence Hill Group hefur samþykkt að kaupa fasteignirnar og áætlar að byggja 180 milljón punda íbúðar- og skrifstofubyggingar á staðnum.