Bjarni Bene­dikts­son fjármálaráðherra ætlar að mæta á  San Síró  í Mílanó í kvöld þegar mætir Inter Milan í síðari leik liðanna í um­spili um sæti í riðlakeppni Evr­ópu­deild­ar­inn­ar.

Bjarni spilaði í eina tíð með Stjörnunni. Síðasta leikinn lék hann árið 1994. Bjarni lék 128 leiki með Stjörnunni í meistaraflokki og skoraði 14 mörk. Þá  spilaði hann  tvo landsleiki með liði 21 ára og yngri,  tólf U19 landsleiki og átta U17 landsleiki og skoraði sitt hvort markið í U19 og U17.

Stjarn­an tapaði fyrri leik liðanna á Laug­ar­dals­vell­in­um, 3:0. Talið er að um 300 stuðnings­menn Stjörn­unn­ar mæti á San Síró í kvöld.