Fyrsta júlí næstkomandi opnar ný og stórbætt aðstaða að Ásgarði í Kerlingarfjöllum undir heitinu Highland Base - Kerlingarfjöll. Um er að ræða heilsárs áfangastað á hálendi Íslands, með margs konar möguleika á gistingu og náttúruupplifun. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Á staðnum verður hótel sem skiptist í herbergi, svítur og skála; svefnpokagisting í fjallaskálum; smáhýsi bæði fyrir einstaklinga og hópa; endurbætt tjaldsvæði; veitingastaður sem tekur 80 manns í sæti og margs konar möguleikar til útivistar og afþreyingar. Ný baðaðstaða opnar svo í Kerlingarfjöllum 1. október 2023. Uppbygging nýrrar aðstöðu í Kerlingarfjöllum hefur verið leidd af Bláa Lóninu sem tekur nú við rekstri ferðaþjónustu á svæðinu.

„Kerlingarfjöll hafa verið ástsæll áfangastaður fyrir Íslendinga í áratugi og það er okkur sönn ánægja að kynna staðinn á ný fyrir gestum, nú þegar aðstaðan hefur tekið algerum stakkaskiptum. Í Kerlingarfjöllum eru ævintýri við hvert fótmál og hér verður aðstaða í boði á hálendinu sem á sér enga hliðstæðu. Sérstaklega leggjum við áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt framboð gistingar. Um leið hefur þess verið gætt við framkvæmdina að umhverfið og saga Kerlingarfjalla, sem er Íslendingum svo kær, njóti sín og því höfum við stigið varlega til jarðar í öllum þáttum þessarar uppbyggingar,“ er haft eftir Grími Sæmundsen, stofnanda og forstjóra Bláa Lónsins. 

„Nýja aðstaðan í Kerlingarfjöllum var þróuð frá grunni af hönnunarteymi Bláa Lónsins, Basalt arkitektum og Design Group Italia. Öll mannvirki eru reist í sátt og samræmi við náttúrulegt umhverfið, um leið og rík saga útivistar í Kerlingarfjöllum er höfð í heiðri. Hönnunar- og byggingarferlið fór allt fram í samræmi við BREEAM staðalinn, sem er leiðandi matsaðferð fyrir sjálfbærni nýbygginga á heimsvísu. Þá er hlýlegur einfaldleiki sem rauður þráður í gegnum alla hönnun innanstokks sem er í samræmi við umhverfið og ekki síður við sögu Kerlingarfjalla. Þetta á við um alla þá gistimöguleika sem í boði verða í Kerlingarfjöllum,“ segir í fréttatilkynningu.

Við uppbyggingu í Kerlingarfjöllum hafi verið horft til umhverfismála í hvívetna. Framkvæmdir hafi til að mynda eingöngu farið fram á landi sem þegar hafði verið raskað og þess freistað að endurnýja eldri húsakynni eins og kostur er. Þá komi rekstraraðilar að gerð nýrrar Ferðaleiðarbókar um Kerlingarfjöll, þar sem sögunni sé gerð góð skil ásamt greinargóðum lýsingum á göngu- og öðrum ferðaleiðum um Kerlingarfjöll. Loks megi nefna að náið sé unnið með Umhverfisstofnun að merkingu gönguleiða, skilta- og kortagerð og svo miðlun upplýsinga til gesta Kerlingarfjalla. Allt miði þetta að því að fleiri geti notið náttúru Kerlingarfjalla um leið og stuðlað sé að betri umgengni ferðalanga.

Ótal möguleikar

Í fréttatilkynningu er bent á að Kerlingarfjöll bjóði upp á nánast óteljandi möguleika til útivistar, fjallamennsku og afþreyingar. Litrík hverasvæði hafi lengi verið vinsæll viðkomustaður gesta og fjölmargar gönguleiðir séu á svæðinu. Kerlingarfjöll séu sannkölluð skíðaparadís, þá sérstaklega til fjallaskíðunar, og svo verði hægt að fara í göngur á snjóþrúgum um rjúkandi jarðhitasvæðið ásamt því að fara í lengri eða skemmri vélsleðaferðir. 

„Kerlingarfjöll voru með öllu ósnortinn hluti hálendisins uns farið var með hópa þangað á fjórða áratug síðustu aldar. Í kjölfarið hóf Ferðafélag Íslands að skipuleggja ferðir á svæðið og reisti skála fyrir ferðalanga árið 1937. Árið 1961 verða Kerlingarfjöll svo helsti áfangastaður skíðaiðkenda að sumri til og við aðstöðuna bættust svefnálma og veitingastaður fyrir skíðanema. Áratugum saman flykktust þúsundir Íslendinga í Kerlingarfjöll á sumrin til að læra á skíði. Skíðaskólinn hætti svo starfsemi um síðustu aldamót og annars konar ferðaþjónusta tók við. Kerlingarfjöll, með stórendurbætta aðstöðu, bjóða gesti velkomna á ný frá og með 1. júlí á svæðið þar sem andi útivistar og ævintýra svífur sem fyrr yfir vötnum,“ segir að lokum í fréttatilkynningu.