Landsbankinn ætlar að senda beint frá ávarpi Steinþórs Pálssonar bankastjóra á netinu fyrir starfsfólk þar sem hann fer yfir skipulagsbreytingar á bankanum og fyrirhugaðar uppsagnir. Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst hefur Landsbankinn ekki tilkynnt Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja um það sem stendur fyrir dyrum. Útsendingin hefst klukkan 16:15 í dag.

Viðskiptablaðið greindi frá því í dag að gerðar verði breytingar á yfirstjórn Landsbankans auk annars, s.s. að styrkja tekjusvið bankans. Starfsmönnum bankans hafði þá ekki verið tilkynnt um neitt.