Eigendur Ögurvíkur hf. og Brim hf. hafa gert samkomulag um að Brim hf. kaupi allt hlutafé í Ögurvík hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum tveimur.

Ögurvík hf. á og gerir frystitogarann Vigra RE-71 út frá Reykjavík. Ögurvík hefur þá einnig rekið söluskrifstofu fyrir sjávarafurðir og vélsmiðju sem m.a. framleiðir toghlera. Á Vigra RE-71 eru tvær áhafnir, sem skipta með sér veiðiferðum, alls 54 manns. Aflaheimildir skipsins á þessu fiskveiðiári eru um 10.000 tonn upp úr sjó.

Brim hf. á og gerir út þrjá frystitogara frá Reykjavík, Guðmund í Nesi RE-13, Brimnes RE-27 og Kleifaberg RE-70. Aflaheimildir skipanna nema um 24.000 tonnum upp úr sjó. Hjá fyrirtækinu vinna um 150 manns til sjós og lands. Brim hf. hyggst gera Vigra RE-71 áfram út frá Reykjavík.

„Það er okkur eigendum Ögurvíkur hf. mikið fagnaðarefni að nú þegar við hyggjumst róa á önnur mið þá skuli öflug útgerð í Reykjavík taka við Vigra. Það er okkur mikils virði að sem minnst röskun verði á högum sjómannanna en margir þeirra hafa unnið hjá fyrirtækinu í áratugi,“ er haft eftir Hirti Gíslasyni framkvæmdastjóra Ögurvíkur hf.