Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrv. formaður Lögmannafélagsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Hann mun sækjast eftir 3. sæti listans.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Brynjari í dag.

„Með þessari ákvörðun er ég að svara áskorunum og kalli fjölda fólks, sem hvatt hefur mig eindregið til stjórnmálaþátttöku og vísað til þess að þörf sé á nýju fólki í fremstu röð,“ segir Brynjar í yfirlýsingunni.

„Þótt ég hafi ekki áður komið að pólitísku starfi innan Sjálfstæðisflokksins hafa skoðanir mína og flokksins jafnan farið saman í meginatriðum og mér er hugleikin baráttan fyrir réttarríkinu, frelsi einstaklingsins til orða og athafna, sem og hið opna frjálsa þjóðfélag. Að þessum grunnstoðum borgaralegs samfélags  er vegið freklega nú á tímum. Við blasir að mikilvæg verkefni á öllum sviðum íslensks samfélags bíður  næsta kjörtímabils, enda hefur hik, úrræðaleysi og óeining einkennt starf núverandi stjórnarflokka. Vil ég því leita eftir stuðningi sjálfstæðisfólks til að leggja lóð mín á vogarskálar aukinnar verðmætasköpunar og nýrrar sóknar fyrir land og lýð.“