Eimskip Holdings Inc., dótturfélag Hf. Eimskipafélag Íslands og stjórn Versacold Income Fund, tilkynna að öll skilyrði yfirtökutilboðs Eimskips í Versacold Income Fund hafa verið uppfyllt. Öll tilskilin leyfi fyrir yfirtökunni hafa verið veitt, að því er fram kemur í tilkynningu.

Eimskip hefur fengið samþykki fyrir kaupum á um það bil 54,1 milljón hlutum, sem samsvara 93% af útgefnum og útistandandi hlutum eða 87% af útgefnum og útistandandi hlutum að öllum hlutum meðtöldum.

Eimskip tilkynnir einnig að það hyggst eignast þá hluti sem það hefur fengið samþykki fyrir þann 30. júlí með því að greiða fyrir þá þann 30. júlí eða innan þriggja viðskiptadaga frá þeirri dagsetningu.

Eimskip hyggst eignast allt hlutafé í Versacold Income Fund og er áætlað að því ljúki í kringum 30. júlí. Hluthafar Versacold eiga ekki rétt á mánaðarlegum arði eins og áður hefur komið fram vegna yfirtökutilboðs Eimskips.

Versacold verður afskráð úr Kauphöllinni í Toronto eins fljótt og hægt er með tilliti til þeirra laga sem gilda þar um. Einnig hyggst Versacold sækja um leyfi til Fjármálaeftirlits Kanada um að losna undan reglum sem gilda um skráð fyrirtæki um leið og Eimskip eignast allt hlutafé í félaginu.

Eimskip vann með KingSett Capital að fjármögnun kaupanna, sem verður með veði í fasteignum.