Hópur einkafjárfestingasjóða hefur lagt 11,4 milljarða Bandaríkjadala yfirtilboð í stoðtækjafyrirtækið Biomet og mælir stjórn þess með að hluthafar taki tilboðinu. Einkafjárfestingasjóðirnir eru Blackstone Group, Goldman Sachs Capital Partners, Kohlberg Kravis Roberts & Co. og TPG.